🇬🇧 For English version: Cookie Policy
Alfreð ehf., kt. 620306-0540 (hér eftir „Alfreð“ eða „við“), notar vefkökur og sambærilega tækni á www.alfred.is. Í þessari stefnu er útskýrt hvaða tækni er notuð, í hvaða tilgangi og hvernig þú getur stjórnað vali þínu.
Að því marki sem upplýsingar sem safnast með vefkökum teljast persónuupplýsingar fer vinnsla þeirra einnig fram samkvæmt Persónuverndarstefnu Alfreðs.
Vefkökur eru litlar gagnaskrár sem vefsíða geymir í tæki notanda eða les úr tækinu. Sambærileg tækni, svo sem staðbundin geymsla, merki (pixels) og auðkenni, getur gegnt svipuðu hlutverki. Í þessari stefnu er hugtakið „vefkökur“ einnig notað um slíka tækni eftir því sem við á.
Vefkökur geta verið lotukökur, sem eyðast þegar vafra er lokað, eða varanlegar kökur, sem geymast í tiltekinn tíma. Þær geta verið frá Alfreð sjálfu eða frá þjónustuveitanda þriðja aðila.
3.1 Nauðsynlegar vefkökur
Nauðsynlegar vefkökur gera vefsíðunni kleift að virka, viðhalda innskráningu og lotum, muna val um vefkökur, verja aðganga og tryggja öryggi þjónustunnar. Þær eru aðeins notaðar þegar þær eru nauðsynlegar til að veita þjónustu sem þú óskar eftir eða til tæknilegrar geymslu eða aðgangs í lögmætum tilgangi með vitund þinni. Þær eru því ekki háðar samþykki, sbr. 2. mgr. 88. gr. laga nr. 70/2022 um fjarskipti.
3.2 Virkni-, tölfræði- og markaðskökur
Aðrar vefkökur eru aðeins virkjaðar eftir að þú hefur veitt samþykki, nema sérstök lagaheimild eigi við. Þetta getur átt við um:
Virknikökur, sem muna val og styðja við viðbótarvirkni, svo sem netspjall.
Tölfræðikökur, sem hjálpa okkur að skilja hvernig vefsíðan er notuð og bæta virkni hennar.
Markaðskökur, sem geta verið notaðar til að mæla árangur auglýsinga eða birta markvissara efni. Slíkar kökur eru aðeins notaðar ef þær eru tilgreindar í Kökustillingum og þú samþykkir þann flokk.
Samþykki þitt þarf að vera frjálst, sértækt, upplýst og ótvírætt. Synjun eða afturköllun samþykkis hefur ekki áhrif á aðgang að grunnvirkni vefsíðunnar, en tiltekin viðbótarvirkni kann að verða óvirk.
Taflan sýnir þær kökur og auðkennagerðir sem kunna að vera notaðar. Nákvæmur og uppfærður listi yfir þær kökur sem eru virkar hverju sinni, þar á meðal heiti, veitanda, tilgang og endingartíma, skal vera aðgengilegur í Kökustillingum neðst á vefsíðunni. Ef misræmi er á milli töflunnar og lifandi kökulistans gildir sá listi um tæknilega virkni hverju sinni.
| Vefkaka / auðkenni | Veitandi | Tilgangur | Flokkur | Endingartími |
|---|---|---|---|---|
| Innskráningar-, lotu- og öryggiskökur (nákvæm heiti birtast í Kökustillingum) | Alfreð | Viðhalda innskráningu og lotum, vernda aðganga og tryggja öruggan rekstur. | Nauðsynleg | Lota eða eins og birtist í Kökustillingum |
| Samþykkiskaka (heiti ræðst af samþykkiskerfi) | Alfreð / veitandi samþykkiskerfis | Muna val notanda um vefkökur. | Nauðsynleg | Eins og birtist í Kökustillingum |
| __cf_bm (þar sem hún er virk) | Cloudflare | Greina og draga úr sjálfvirkri eða skaðlegri umferð. | Nauðsynleg | 30 mínútur eftir samfellda óvirkni |
| Tungumála- og viðmótsstillingar (ef notaðar) | Alfreð | Muna val sem notandi hefur sérstaklega gert. | Virkni | Eins og birtist í Kökustillingum |
| _ga | Google Analytics | Aðgreina heimsóknir og útbúa tölfræði um notkun. | Tölfræði | Allt að 2 ár, eftir stillingum |
| ga<container-ID> | Google Analytics | Viðhalda lotuupplýsingum og útbúa tölfræði um notkun. | Tölfræði | Allt að 2 ár, eftir stillingum |
| crisp-client/* (aðeins fyrirtækjahluti) | Crisp | Endurheimta spjalllotu og skilaboðasögu milli síðna og heimsókna. | Nauðsynleg | Þegar notendur eyða fyrirtækja aðgangi. |