🇬🇧 For English version: Company terms of use for Alfreð


Fyrirtækjaskilmálar

Þessir skilmálar fyrir Alfreð (hér eftir „skilmálar“) gilda á milli Alfreðs ehf., kt. 630217-0830, Akralind 8, 201 Kópavogur (hér eftir „Alfreð ehf.“) og fyrirtækisins um notkun á Alfreð.

Með því að nota þá þjónustu sem Alfreð ehf. veitir lýsir fyrirtækið því yfir að skilmálarnir hafi verið lesnir yfir af þess hálfu og viðkomandi skilið og samþykkt skilmálana í heild sinni fyrir þess hönd. Sá sem samþykkir skilmálana fyrir hönd fyrirtækisins staðfestir að viðkomandi hefur umboð til þess að samþykkja skilmálana fyrir hönd fyrirtækisins og að fyrirtækið muni virða skilmálana og fara að þeim í einu og öllu. Óheimilt er að nota Alfreð án þess að samþykkja skilmálana.

1. Skilgreiningar

Nema sérstaklega sé kveðið á um annað í þessum skilmálum hafa eftirgreind orð í skilmálunum þá merkingu sem hér segir:

1.1 „Alfreð“ er kerfi sem býður notendum þess upp á lausn til að skoða og fylgjast með atvinnuauglýsingum, hafa umsjón með eigin ferilskrám og sækja um tiltæk störf sem eru auglýst í Alfreð smáforritinu (app) og/eða á heimasíðunni www.alfred.is og býður fyrirtækjum lausn þar sem þau geta auglýst störf, tekið á móti atvinnuumsóknum frá umsækjendum, unnið úr umsóknum og átt samskipti við umsækjendur.

1.2 „Umsækjandi“ er einstaklingur sem skráð hefur einstaklingsprófíl í Alfreð.

1.3 „Fyrirtæki“ er fyrirtæki, félag, opinber lögaðili eða einstaklingur sem auglýsir starf laust til umsóknar á Alfreð og fær umsóknir frá umsækjendum. Hugtakið fyrirtæki í skilmálunum nær einnig til vinnustaðaprófíla sbr. ákvæði 4 í skilmálum þessum, nema annað sé sérstaklega tekið fram. Vinnustaðaprófíll merkir í þessu sambandi aðila sem stundar atvinnurekstur, óháð því hvort slíkur aðili starfar undir eigin kennitölu eða sé viðskiptaleg eining innan tiltekins félagaforms.

1.4 „Gagnagrunnur“ er samansafn hvers kyns efnis sem er raðað á kerfisbundinn eða aðferðafræðilegan hátt og er aðgengilegt með rafrænum hætti eða öðrum hætti, óháð birtingarformi þess og búið hefur verið til af Alfreð ehf., sbr. einnig lög nr. 73/1972 („höfundarréttarlögin“), sérstaklega gagnagrunnur um atvinnutilboð og notendasnið.

1.5 „Prófíll“ er snið af ferilskrá einstaklinga í Alfreð eða vinnustaðarprófíll í Alfreð, sem inniheldur allar upplýsingar um umsækjandann eða fyrirtækið og byggir á upplýsingum sem umsækjandinn eða fyrirtækið hefur veitt í gegnum samfélagsmiðlaaðgang sinn eða hafa verið skráðar sérstaklega af umsækjanda eða fyrirtækinu.

1.6 „Samfélagsmiðlaaðgangur“ merkir hvers kyns aðgang umsækjandans eða fyrirtækisins að samfélagsmiðlum, sem umsækjandinn eða félagið notar til að afla gagna fyrir einstaklingsprófíl þeirra (eins og Facebook, Google eða annað).

1.7 „Notandi“ er einstaklingur sem notar Alfreð óháð því hvort hann hefur skráð þar persónuupplýsingar eða ekki.

2. Notkun af fyrirtæki

2.1 Notkun á Alfreð af fyrirtæki samanstendur af því að stofna auglýsingar um laust starf til umsóknar, uppfæra upplýsingar um fyrirtækið, hafa umsjón með aðgangi að auglýsingum og aðgangi að umsóknum og vinnslu umsókna og eiga hvers konar samskipti við notendur eða önnur samskipti við Alfreð.

2.2 Fyrirtæki skal nota Alfreð í þeim tilgangi sem fram kemur í ákvæði 2.1. Þá takmarkast notkun á Alfreð af fyrirtæki við almenna og löglega starfsemi og er aðeins fyrir fyrirtækið sjálft. Fyrirtækinu er eingöngu heimilt að nálgast og nota upplýsingar sem tengjast því sjálfu eða umsóknum sem beint er til félagsins.

2.3 Fyrirtækinu er óheimilt að reyna að fá aðgang að og nota upplýsingar sem ætlaðar eru öðrum. Fyrirtækið er ábyrgt fyrir lögmæti, réttleika og áreiðanleika alls efnis sem fyrirtækið skráir í Alfreð. Þannig ber fyrirtækið ábyrgð á öllum villum, röngum dagsetningum og/eða öðru sem það skráir við stofnun atvinnuauglýsingar eða síðar.

3. Aðgangur fyrir fyrirtæki

3.1 Í sumum tilvikum, einkum þegar um er að ræða starfsmenn fyrirtækja kunna stjórnendur að búa til aðgang í Alfreð kerfið fyrir starfsmenn sína. Fyrirtæki skuldbinda sig þá til að tryggja að starfsmenn, sem þau gera aðgang fyrir í Alfreð kerfinu, hafi samþykkt að vera notendur og fyrirtækin skrá þær persónuupplýsingar í kerfið sem af því leiðir. Þá ber viðkomandi stjórnendum fyrirtækja að tryggja nákvæmni og áreiðanleika upplýsinga starfsmanna sinna og að eyða þeim út eftir því sem við á.