🇬🇧 For English version: User terms and conditions for Alfred system


Skilmálar fyrir notendur Alfreðs

Þessir skilmálar fyrir Alfreð (hér eftir "skilmálar") gilda á milli Alfreðs ehf., kt. 630217-0830, Akralind 8, 201 Kópavogur (hér eftir "Alfreð ehf." eða Alfreð) og notenda um notkun á Alfreð. Með því að nota þá þjónustu sem Alfreð ehf. veitir lýsir notandinn því yfir að hann hafi lesið, skilið og samþykkt skilmálana í heild sinni. Óheimilt er að nota Alfreð án þess að samþykkja skilmálana.

1. Skilgreiningar

1.1 „Alfreð“ er kerfi sem býður notendum þess upp á lausn til að skoða og fylgjast með atvinnuauglýsingum, hafa umsjón með eigin ferilskrám og sækja um tiltæk störf sem eru auglýst í Alfreð smáforritinu (app) og/eða á heimasíðunni www.alfred.is og býður fyrirtækjum lausn þar sem þau geta auglýst störf, tekið á móti atvinnuumsóknum frá umsækjendum, unnið úr umsóknum og átt samskipti við umsækjendur.

1.2 „Umsækjandi“ er einstaklingur sem skráð hefur einstaklingsprófíl í Alfreð.

1.3 „Fyrirtæki“ er fyrirtæki, félag, opinber lögaðili eða einstaklingur sem auglýsir starf laust til umsóknar á Alfreð og fær umsóknir frá umsækjendum. Hugtakið fyrirtæki í skilmálunum nær einnig til vinnustaðaprófíla fyrirtækis. Vinnustaðaprófíll merkir í þessu sambandi aðila sem stundar atvinnurekstur, óháð því hvort slíkur aðili starfar undir eigin kennitölu eða sé viðskiptaleg eining innan tiltekins félagaforms.

1.4 „Gagnagrunnur“ er samansafn hvers kyns efnis sem er raðað á kerfisbundinn eða aðferðafræðilegan hátt og er aðgengilegt með rafrænum hætti eða öðrum hætti, óháð birtingarformi þess og búið hefur verið til af Alfreð ehf., sbr. einnig lög nr. 73/1972 („höfundarréttarlögin“), sérstaklega gagnagrunnur um atvinnutilboð og notendasnið.

1.5 „Prófíll“ er snið af ferilskrá einstaklinga í Alfreð eða vinnustaðarprófíll í Alfreð, sem inniheldur allar upplýsingar um umsækjandann eða fyrirtækið og byggir á upplýsingum sem umsækjandinn eða fyrirtækið hefur veitt í gegnum samfélagsmiðlaaðgang sinn eða hafa verið skráðar sérstaklega af umsækjanda eða fyrirtækinu.

1.6 „Samfélagsmiðlaaðgangur“ merkir hvers kyns aðgang umsækjandans eða fyrirtækisins að samfélagsmiðlum, sem umsækjandinn eða félagið notar til að afla gagna fyrir prófíl þeirra (eins og Facebook, Google eða annað).

1.7 „Notandi“ er einstaklingur sem notar Alfreð óháð því hvort hann hefur skráð þar persónuupplýsingar eða ekki.

2. Notkun af notanda

2.1 Notkun á Alfreð af notanda samanstendur af:

2.1.1 Sem umsækjandi; af því að skoða atvinnuauglýsingar um laust starf frá fyrirtækjum, fylgjast með lausum störfum samkvæmt eigin vali umsækjanda á atvinnuflokkum, starfshlutfalli, staðsetningu atvinnu o.þ.h., uppfærslu eigin upplýsinga um starfsferil, hæfni og aðra kunnáttu sem skilgreind er á einstaklingsprófíl hans, umsóknir um störf eða hvers konar önnur samskipti við fyrirtæki eða önnur samskipti við Alfreð.

2.1.2 Sem starfsmaður fyrirtækis sem auglýsir störf á Alfreð; af því að skrá sig inn á fyrirtækjaaðgang, stofna aðganga fyrir aðra starfsmenn, setja inn auglýsingar, sjá um úrvinnslu umsókna og eiga samskipti við umsækjendur, allt eftir aðgangsheimildum viðkomandi.

2.2 Notandi skal nota Alfreð í þeim tilgangi sem fram kemur í ákvæði 2.1. Þá takmarkast notkun á Alfreð af notanda við almenna og löglega háttsemi og er aðeins fyrir notandann sjálfan. Notanda er eingöngu heimilt að nálgast og nota upplýsingar sem tengjast honum sjálfum og störfum sem auglýst eru af fyrirtækjum. Notanda er óheimilt að reyna að fá aðgang að og nota upplýsingar sem ætlaðar eru öðrum.

3. Aðgangur fyrir notendur

3.1 Eftirfarandi gerðir aðgangs eru í boði fyrir notanda:

3.1.1 Innskráning með símanúmeri. Símanúmer umsækjanda og SMS staðfestingarkóði eru notuð þegar umsækjandi stofnar einstaklingsprófíl sinn. Með því að skrá sig inn samþykkir notandinn skilmála þessa.

3.1.2 Innskráning með netfangi. Netfang umsækjanda og tölvupóstur með staðfestingarkóða eru notuð þegar umsækjandi stofnar einstaklingsprófíl sinn. Netfang starfsmanns fyrirtækis er notað til að stofna aðgang hans að fyrirtækjaaðgangi í Alfreð. Með því að skrá sig inn samþykkir umsækjandi/starfsmaður skilmála þessa.

3.1.3 Innskráning með samfélagsmiðlum. Umsækjandi er innskráður gegnum samfélagsmiðlaaðgang. Með því að skrá sig inn samþykkir umsækjandinn skilmála þessa og samþykkir þar með að veita Alfreð og Alfreð ehf. aðgang að upplýsingum sem hann kann að hafa veitt á samfélagsmiðlaaðgangi sínum. Upplýsingarnar eru aðeins sóttar þegar umsækjandinn skráir sig í fyrsta sinn. Ef umsækjandi uppfærir upplýsingar sínar á samfélagsmiðlaaðgangi uppfærast upplýsingarnar ekki sjálfkrafa í Alfreð.

3.1.4 Aðgangur án innskráningar. Með þessu er aðeins hægt að skoða auglýsingar sem eru til staðar í Alfreð. Með því að nota Alfreð á þennan hátt samþykkir notandinn skilmála þessa.

4. Umsóknarferli

4.1 Hafi umsækjandi áhuga á að sækja um starf, sem auglýst er á Alfreð, getur hann sent umsókn til fyrirtækis með þeim upplýsingum sem þegar eru til staðar á einstaklingsprófíl sínum ásamt þeim viðbótarupplýsingum sem fyrirtækið hefur óskað eftir og frekari upplýsingum sem umsækjandi vill koma á framfæri. Samskipti þessi geta átt sér stað í Alfreð.

4.2 Fyrirtækið og umsækjandinn bera ábyrgð á öllum samskiptum sem kunna að eiga sér stað þeirra á milli, hvort sem þau fara fram í gegnum Alfreð eða ekki.