🇬🇧 For English version: Privacy Policy of Alfreð


Persónuverndarstefna Alfreðs

Alfreð ehf. (hér eftir einnig nefnt “Alfreð” eða “við”) starfrækir Alfreð kerfið, sem í gegnum app/vefsíðu tengir saman fólk í atvinnuleit og fyrirtæki í leit að starfsfólki. Þar að auki bjóðum við notendum upp á að auglýsa ýmis konar námskeið á sviði endurmenntunar, fræðslu eða tómstunda. Við leggjum ríka áherslu á persónuvernd notenda Alfreðs og að vinnsla persónuupplýsinga sé í samræmi við lög.

Persónuupplýsingar eru upplýsingar um persónugreindan eða persónugreinanlegan einstakling, en með því síðarnefnda er átt við að unnt sé að persónugreina einstakling, beint eða óbeint, á grundvelli tiltekinna upplýsinga.

Í persónuverndarstefnu Alfreðs er meðal annars fjallað um hver ber ábyrgð á vinnslu persónuupplýsinga, hvaða persónuupplýsingum er safnað og í hvaða tilgangi, hvernig þær eru notaðar, hvernig öryggi þeirra er tryggt og hvaða réttindi persónuverndarlöggjöfin veitir notendum.

Persónuverndarstefna Alfreðs ehf. nær til allra notenda (hér eftir einnig nefnt “þú”) apps og vefsíðu Alfreðs. Notendur Alfreðs eru umsækjendur og starfsmenn fyrirtækja sem skrá sig inn í Alfreð kerfið til þess að sækja um eða auglýsa laus störf. Notendur eru einnig námskeiðshaldarar sem skrá námskeið inn í Alfreð kerfið, sem og þeir sem skoða námskeið og störf á vefsíðu/appi Alfreðs án þess að skrá sig inn.

1. Ábyrgðaraðili vinnslu persónuupplýsinga

Ábyrgðaraðili er sá sem ákveður tilgang og aðferð við vinnslu persónuupplýsinga. Alfreð er því ábyrgðaraðili vinnslu persónuupplýsinga sem notendur skrá í kerfi félagsins. Ákveði notendur að skrá sig á námskeið eða sækja um starf verður námskeiðshaldari/fyrirtæki sjálfstæður ábyrgðaraðili þeirra persónuupplýsinga sem þeir ákveða að vinna, s.s. með því að afrita persónuupplýsingar í kerfi sitt.

2. Hvernig söfnum við persónuupplýsingum

Notendur veita Alfreð ehf. sjálfir persónuupplýsingar með skráningu í Alfreð kerfið, annað hvort í appi eða á vefsíðu félagsins. Í sumum tilvikum, einkum þegar um er að ræða starfsmenn fyrirtækja kunna stjórnendur að búa til aðgang í Alfreð kerfið fyrir starfsmenn sína og er þá gert ráð fyrir því að skráning byggi á samþykki eða starfssamningi þeirra aðila.

3. Hvaða persónuupplýsingum er safnað og hvernig eru þær unnar

Alfreð ehf. safnar og vinnur með persónuupplýsingar notenda sem nauðsynlegar eru svo unnt sé að tengja saman fólk og fyrirtæki, bæði vegna námskeiða og starfa. Eftirfarandi persónuupplýsingum kann Alfreð að safna um notendur:

3.1 Upplýsingar sem notendur skrá sjálfir.

Kenniupplýsingar: Nafn, heimilisfang, símanúmer og netfang.

3.1.1 Upplýsingar um umsækjendur.

Upplýsingar sem notendur setja í ferilskrá/kynningarbréf: Til dæmis upplýsingar um menntun, fyrri störf, meðmælendur o.þ.h.

Samskiptaupplýsingar: Upplýsingar um samskipti þín við Alfreð ehf. og/eða starfsmenn fyrirtækja vegna lausra starfa.

Ráðningarupplýsingar: Ráðningardagur, starfshlutfall, bankaupplýsingar, lífeyrissjóður, stéttarfélag o.þ.h.

4. Upplýsingar um tækið þitt og athæfi í appi/vefsíðu félagsins.

Alfreð notar vafrakökur til að greina umferð á vefsíðu sinni og appi. Við skráum t.d. fjölda síðna sem þú ferð inn á, hve lengi þú ert inni á síðunni, hvaða síður eru skoðaðar, endurteknar komur á síðu o.s.frv. Nánar er um þetta vísað til vefkökustefnu Alfreðs.

Upplýsingar um athæfi þitt í Alfreð kerfinu: Þegar þú notar Alfreð kerfið, hvort sem er gegnum app eða vefsíðu, þá fáum við upplýsingar s.s. um yfirlit starfsumsókna þinna, hvort notuð sé rafræn undirskrift, skilaboð milli þín og vinnuveitenda, stöðu umsókna þinna og starfsmerkingar þínar.

Upplýsingar um tæki þitt: Ef við fáum tilkynningu um tæknileg frávik eða beiðni um aðstoð þegar þú notar appið fáum við upplýsingar um útgáfu appsins sem þú notar, tækið þitt, þ.m.t. stýrikerfi og vélbúnað, auk annarra upplýsinga sem okkur eru nauðsynlegar til þess að laga villur í hugbúnaði og bæta vörur okkar og þjónustu. Ef við fáum sams konar tilkynningu í gegnum vefforritið fáum við upplýsingar um hvaða stýrikerfi þú notar, hvaða vafra, hve lengi kerfið var notað í viðkomandi skipti og vefslóð, auk annarra upplýsinga sem eru nauðsynlegar, til dæmis til að laga villur í hugbúnaði og bæta vörur okkar og þjónustu.

Við notum IP tölu tækis þíns til að vernda okkar lögmætu hagsmuni og til þess að leysa úr tæknilegum frávikum. Það gerir okkur meðal annars kleift að bæta og þróa vefsíðu/app okkar og þannig efla þjónustu við notendur.