🇬🇧 For English version: Privacy Policy of Alfreð


Persónuverndarstefna Alfreðs

Alfreð ehf. (hér eftir einnig nefnt “Alfreð” eða “við”) starfrækir Alfreð kerfið, sem í gegnum app/vefsíðu tengir saman fólk í atvinnuleit og fyrirtæki í leit að starfsfólki. Þar að auki bjóðum við notendum upp á að auglýsa ýmis konar námskeið á sviði endurmenntunar, fræðslu eða tómstunda. Við leggjum ríka áherslu á persónuvernd notenda Alfreðs og að vinnsla persónuupplýsinga sé í samræmi við lög.

Persónuupplýsingar eru upplýsingar um persónugreindan eða persónugreinanlegan einstakling, en með því síðarnefnda er átt við að unnt sé að persónugreina einstakling, beint eða óbeint, á grundvelli tiltekinna upplýsinga.

Í persónuverndarstefnu Alfreðs er meðal annars fjallað um hver ber ábyrgð á vinnslu persónuupplýsinga, hvaða persónuupplýsingum er safnað og í hvaða tilgangi, hvernig þær eru notaðar, hvernig öryggi þeirra er tryggt og hvaða réttindi persónuverndarlöggjöfin veitir notendum.

Persónuverndarstefna Alfreðs ehf. nær til allra notenda (hér eftir einnig nefnt “þú”) apps og vefsíðu Alfreðs. Notendur Alfreðs eru umsækjendur/hæfnibjóðendur og starfsmenn fyrirtækja/hæfnileitendur sem skrá sig inn í Alfreð kerfið til þess að sækja um eða auglýsa laus störf. Notendur eru einnig námskeiðshaldarar sem skrá námskeið inn í Alfreð kerfið, sem og þeir sem skoða námskeið og störf á vefsíðu/appi Alfreðs án þess að skrá sig inn.

Alfreð býður einnig upp á Hæfnileit sem parar prófíla saman við starfslýsingar, en það er gert með því að nota síur og gervigreind til að vinna úr uppgefnum upplýsingum frá þeim aðilum sem taka þátt í hæfnileit. Þátttaka í Hæfnileit Alfreðs er valfrjáls og ef notendur virkja ekki Hæfnileitina verða persónuupplýsingar þeirra ekki notaðar vegna þeirrar virkni.

1. Ábyrgðaraðili vinnslu persónuupplýsinga

Ábyrgðaraðili er sá sem ákveður tilgang og aðferð við vinnslu persónuupplýsinga. Alfreð er því ábyrgðaraðili vinnslu persónuupplýsinga sem notendur skrá í kerfi félagsins. Ákveði notendur að skrá sig á námskeið eða sækja um starf verður námskeiðshaldari/fyrirtæki sjálfstæður ábyrgðaraðili þeirra persónuupplýsinga sem þeir ákveða að vinna, s.s. með því að afrita persónuupplýsingar í kerfi sitt.

Alfreð er ábyrgðaraðili vinnslu persónuupplýsinga sem notaðar eru til samsvörunar, síunar og stigagjafar á prófílum í Hæfnileit. Eftir að hæfnibjóðendur samþykkja boð hæfnileitenda um tiltekið starf, þá tekur við umsóknarferli og eru hæfnileitendur eftir það ábyrgðaraðilar vegna þeirra persónuupplýsinga sem þeir ákveða að vinna með.

Ef fyrirtæki nýta rafræna undirritunarlausn Alfreðs er fyrirtækið ábyrgðaraðili að vinnslu þeirra persónuupplýsinga sem fram koma í ráðningartengdum skjölum. Alfreð ehf. vinnur upplýsingarnar eingöngu sem vinnsluaðili, samkvæmt fyrirmælum fyrirtækisins og að því marki sem nauðsynlegt er til að veita rafrænu undirritunarþjónustuna.

2. Hvernig söfnum við persónuupplýsingum

Notendur veita Alfreð ehf. sjálfir persónuupplýsingar með skráningu í Alfreð kerfið, annað hvort í appi eða á vefsíðu félagsins. Í sumum tilvikum, einkum þegar um er að ræða starfsmenn fyrirtækja kunna stjórnendur að búa til aðgang í Alfreð kerfið fyrir starfsmenn sína og er þá gert ráð fyrir því að skráning byggi á samþykki eða starfssamningi þeirra aðila.

3. Hvaða persónuupplýsingum er safnað og hvernig eru þær unnar

Alfreð ehf. safnar og vinnur með persónuupplýsingar notenda sem nauðsynlegar eru svo unnt sé að tengja saman fólk og fyrirtæki, bæði vegna námskeiða og starfa. Eftirfarandi persónuupplýsingum kann Alfreð að safna um notendur:

3.1 Upplýsingar sem notendur skrá sjálfir.

3.1.1. Kenniupplýsingar: Nafn, heimilisfang, símanúmer og netfang.

3.2. Upplýsingar um umsækjendur.

3.2.1 Upplýsingar sem notendur setja í ferilskrá/kynningarbréf: Til dæmis upplýsingar um menntun, fyrri störf, meðmælendur o.þ.h.

3.2.2 Samskiptaupplýsingar: Upplýsingar um samskipti þín við Alfreð ehf. og/eða starfsmenn fyrirtækja vegna lausra starfa.

3.2.3 Ráðningarupplýsingar: Ráðningardagur, starfshlutfall, bankaupplýsingar, lífeyrissjóður, stéttarfélag o.þ.h.

3.3. Upplýsingar vegna Hæfnileitar

3.3.1. Til viðbótar við að fylla út prófílinn sinn að fullu (100%) þurfa hæfnibjóðendur að veita viðbótarupplýsingar um óskir tengdar starfi, s.s. hæfni, starfskjör, starfsaðstæður og ferilskrá (hafi hún ekki áður verið tengd við prófíl). Jafnframt þurfa hæfnibjóðendur að auðkenna sig með rafrænum skilríkjum og þar með gefa upplýsingar um fullt nafn, kennitölu og símanúmer.

3.3.2. Alfreð notar ofangreindar upplýsingar til að para saman hæfnibjóðendur og hæfnileitendur á eftirfarandi hátt:

3.3.2.1. Fyrst eru upplýsingarnar síaðar út frá upplýsingum sem hæfnibjóðendur hafa veitt í prófíl. Persónuupplýsingar eins og aldur, kyn, þjóðerni eða trúarbrögð eru ekki notaðar í til að para hæfnibjóðendur og starfslýsingar.

3.3.2.2. Í kjölfarið eru ofangreindar upplýsingar hæfnibjóðenda sem stóðust fyrstu síun sendar í gervigreindarkerfi þriðja aðila sem hefur verið þjálfað sérstaklega til að lesa, gefa einkunn og para saman upplýsingar hæfnibjóðenda og starfslýsingar.

3.3.2.3. Gervigreindarkerfið metur viðeigandi þætti, s.s. menntun og starfsreynslu, og velur hóp hæfnibjóðenda í samræmi við niðurstöðurnar. Hæfnibjóðendur sem valdir eru, sbr. liðir 3.3.2.2 og 3.3.2.3 fá boð um að lýsa yfir áhuga á því að sækja um tiltekið starf innan tiltekins tíma. Gervigreindin velur með sama hætti úr hópi þeirra sem lýsa yfir áhuga og fá hæfnileitendur í kjölfarið aðgang að prófílum þeirra sem valdir eru, en ekki annarra.

4. Upplýsingar um tækið þitt og athæfi í appi/vefsíðu félagsins.